Guimaraes, Isak, Kimmich, Diaz, Branthwaite, Mainoo og fleiri góðir í slúðri dagsins
   sun 23. febrúar 2020 05:55
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Spánn í dag - Atletico tekur á móti Villarreal
Mynd: Getty Images
Það eru fimm flottir leikir á dagskrá spænsku úrvalsdeildarinnar í dag og þar ber hæst þegar Atletico Madrid tekur á móti Villarreal í spennandi leik í Meistaradeildarbaráttunni.


Flautað verður til leiks í fyrsta leik dagsins klukkan 11:00, þá mætast Osasuna og Granada. Klukkan 13:00 hefst annar leikur dagsins en þá tekur Alaves á móti Athletic Bilbao.

Valladolid og Espanyol mætast klukkan 15:00 og þar á eftir á dagskránni er viðureign Getafe og Sevilla, bæði liðin eru að berjast um Meistaradeildarsæti.

Lokaleikur dagsins er stórleikur, þá mætast Atletico Madrid og Villarreal og eins og áður segir mikilvægur leikur í Meistaradeildarbaráttunni, flautað verður til leiks klukkan 20:00.

Sunnudagur 23. febrúar.
11:00 Osasuna - Granada CF
13:00 Alaves - Athletic
15:00 Valladolid - Espanyol
17:30 Getafe - Sevilla (Stöð 2 Sport)
20:00 Atletico Madrid - Villarreal (Stöð 2 Sport 3)
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner