Fotbolti.net
23.04.18 - 13:54
Magnús Már Einarsson

Jónatan Ingi í FH (Staðfest)

Jónatan Ingi í FH (Staðfest)
Canon

Mynd: FH

FH hefur fengið kantmanninn Jónatan Inga Jónsson í sínar raðir frá AZ Alkmaar í Hollandi.

Jónatan skrifaði í dag undir samning við FH sem gildir út árið 2019.
Jónatan er 19 ára gamall kantmaður sem fór frá FH til AZ Alkmaar árið 2015.

Hann skoraði með FH í æfingaleik gegn Selfossi á dögunum og hefur nú samið við félagið.

Á ferli sínum hefur Jónatan bæði leikið með U17 og U19 ára landsliði Íslands.

FH mætir Grindavík í fyrstu umferð Pepsi-deildarinnar næstkomandi laugardag.

Mættur í Draumaliðsdeildina
Hægt er að kaupa Jónatan í Draumaliðsdeild Eyjabita.

Smelltu hér til að taka þátt í leiknum!

FH hefur samið við Jónatan Inga Jónsson út keppnistímabilið 2019. Jónatan er uppalinn FHingur sem við bjóðum hjartanlega velkominn aftur heim í Kaplakrika👏. #ViðerumFH #fotboltinet pic.twitter.com/5im8K7GGJ3

— FHingar.net (@fhingar) April 23, 2018

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.