Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 23. maí 2019 10:07
Elvar Geir Magnússon
Lak Ian Wright nýjum treyjum Arsenal?
Aubameyang og Lacazette.
Aubameyang og Lacazette.
Mynd: Skjáskot
Er Ian Wright búinn að leka því út hvernig treyjur Arsenal munu líta út á næsta tímabili?

Þessi fyrrum framherji Arsenal setti mynd af Alexandre Lacazette og Pierre-Emerick Aubameyang í treyjum sem stuðningsmenn telja að séu nýr vara- og aðalbúningur félagsins.

Wright eyddi myndinni út en hún hafði þá farið á flug á samfélagsmiðlum.

Treyjurnar hafa allavega fengið góð viðbrögð og margir stuðningsmenn Arsenal sem vonast til að þetta séu nýju treyjurnar.

Varabúningurinn vekur athygli en hann þykir minna á 'banana' treyju Arsenal frá 1991 en Wright klæddist henni sjálfur á sínum tíma.

Adidas tekur við af Puma sem treyjuframleiðandi Arsenal.
Athugasemdir
banner
banner
banner