„Ég er mjög svekktur. Þetta eru ódýr mörk sem við fáum á okkur en það er ekkert við því að gera,“ sagði Jón Óli Daníelsson, þjálfari ÍBV, eftir 1-3 tap gegn Val í Pepsi Max deild kvenna í dag.
Lestu um leikinn: ÍBV 1 - 3 Valur
Jón Óli fékk gult spjald í leiknum og var hiti á köflum í leiknum. „Maður er náttúrulega ekki með góðar minningar frá bikarleiknum hér um daginn, þar sem er haft af okkur mark og ekki dæmt vítaspyrna, sem var gersamlega fáránlegt. Síðan er Cloé rifin hérna niður í skyndisókn og það er ekki veifað gulu spjaldi. Maður hélt að það væri sami dómaraskandall að fara í gang og ég ætlaði bara að koma í veg fyrir það.“
Viðtalið í heild er hér í spilaranum.
Athugasemdir