Fotbolti.net
23.06.21 - 22:53
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Spurt hvort Pogba væri að gefa vísbendingar með hárgreiðslu sinni

Spurt hvort Pogba væri að gefa vísbendingar með hárgreiðslu sinni
Canon

Mynd: EPA

Powerade
Paul Pogba sýndi hvers hann er megnugur þegar Frakkland gerði 2-2 jafntefli við Portúgal á Evrópumótinu.
Pogba átti stórkostlegar sendingar í leiknum og frammistaða hans var með þeim betri á mótinu til þessa.

Pogba er þekktur fyrir hárgreiðslur sínar, en hann var með nýjan stíl í kvöld. Hárið hans var svart og hvítt, en það vakti upp spurningar á meðal fjölmiðlamanna um framtíð hans.

„Eins og Juventus treyjan?" sagði Pogba þegar hann var spurður að því af hverju hárið hans væri í litum Juventus. „Ég bjóst við þessari spurningu... Ég er ekki að hugsa um framtíð mína, ég er bara að hugsa um EM. Og hárið mitt breytist alltaf, þið vitið það!"

Samningur Pogba við Manchester United rennur út eftir næsta tímabil og hefur hann verið orðaður við endurkomu til Juventus.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.