Tveir leikmenn Sheffield United hafa verið ákærðir af lögreglunni eftir læti sem sköpuðust þegar áhorfendur geystust inn á völlinn eftir undanúrslitaleik umspils Championship-deildarinnar.
Nottingham Forest vann í vítakeppni á City Ground þann 17. maí og kom sér í úrslitaleikinn þar sem liðið tryggði sér sæti í úrvalsdeildinni.
Nottingham Forest vann í vítakeppni á City Ground þann 17. maí og kom sér í úrslitaleikinn þar sem liðið tryggði sér sæti í úrvalsdeildinni.
Það eru þeir Rhian Brewster og Oli McBurnie sem fengu ákæru.
Stuðningsmenn Forest dreifðu myndbandi eftir leik liðsins við Sheffield United þar sem það sést til McBurnie sem virðist traðka á stuðningsmanni Forest.
Eins og áður segir sköpuðust mikil læti á vellinum en stuðningsmaður Nottingham Forest var sendur í fangelsi fyrir að skalla Billy Sharp, leikmann Sheffield United.
Athugasemdir