Arsenal gæti hætt við Sesko - Bayern í baráttuna um Gittens - Chelsea hyggst ekki selja Jackson
Sigurður Egill: Mjög ánægður og stoltur með það
Túfa um Patrick Pedersen: Hann þarf að hlusta meira á mig
Sigurjón Rúnarsson: Aldrei víti segir nýútskrifaði fasteignasalinn
Óskar Hrafn skýtur á Túfa: Gerðu enga tilraun að spila fótbolta
Dóri Árna: 11 manna blokk og sparkað í menn frá fyrstu mínútu
Láki: Þetta var mjög skrítinn leikur
Maggi: Ef þú ferð að einbeita þér að töflunni þá fer allt í köku
Rúnar Kristins: Hann hendir sér niður og tryggir liðinu sínu stig
Alex Freyr: Vonsvikinn með eigin frammistöðu og liðsins
Mosfellingar létu vel í sér heyra í Eyjum - „Besti bærinn á jörðinni"
Jökull: Það eru ekki margir með hærra fótbolta IQ en hann
Deano eftir erfiða viku: Sest niður og sé hvað framtíðin býður upp á
Ómar Björn: Hann var frábær þjálfari, ég get þakkað honum fyrir fullt
Árni Snær: Þetta eru bara geggjaðir gæjar
Gylfi Þór: Komumst ekki ofar eins og er
Hallgrímur Jónasson: Gat ekki beðið um meira frá strákunum
Sölvi Geir: Koma norður, taka þrjú stig og drulla okkur aftur heim
„Mjög sérstakt að öll orka hafi farið í að kenna Ívari hvernig á að spila í Boganum"
Þurfti að kenna Ívari Orra regluna - „Hann breytti því bara í hálfleik sem mér fannst bara fínt"
Jóhann Birnir: Heilt yfir fannst mér við vera ofan á
   mán 23. júní 2025 22:19
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Maggi: Ef þú ferð að einbeita þér að töflunni þá fer allt í köku
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„ÍBV voru ofan á í fyrri hálfleik og skora mark. Við skorum reyndar mark líka sem ég hefði viljað sjá standa," sagði Magnús Már Einarsson, þjálfari Aftureldingar, eftir endurkomusigur gegn ÍBV í dag.

„Svo fannst mér við byrja seinni hálfleikinn frábærlega. Áður en við skorum þessi mörk þá fannst mér við vera farnir að banka og ná undirtökunum. Þessi mörk fannst mér koma verðskuldað og eftir það snerist þetta svolítið um að verja forskotið."

Lestu um leikinn: ÍBV 1 -  2 Afturelding

Maggi var ánægður með stuðninginn en Mosfellingar létu vel í sér heyra.

„Fín mæting úr Mosfellsbænum. Mér fannst við eiga stúkuna sérstaklega í lokin. Það gaf okkur aukakraft og ég er þakklátur fyrir þann stuðning. Líka liðsheildin inn á vellinum, leikmenn þurftu að spila stöður sem þeir eru ekki vanir að spila. Leikmenn voru að meiðsat og það steig næsti maður upp og ekkert mál," sagði Maggi.

Afturelding er komið upp í efri hlutann eftir sigurinn.

„Ég er að horfa sem minnst á þessa töflu. Þetta mót er búið í október og það er langur vegur framundan, við þurfum bara að hugsa um að vilja meira, það er Víkingur næst og ná í þrjú stig þar. Þetta er svo jöfn deild, ef þú ferð að einbeita þér að tölfunni og reikna stigafjölda þá fer allt í köku," sagði Maggi.
Athugasemdir
banner