Fotbolti.net
23.06.26 - 21:25
Brynjar Ingi Erluson

Besta deild kvenna: FH tókst ekki að endurheimta toppsætið

Nadía Atla skoraði jöfnunarmarkið gegn sínum gömlu félögum

Nadía Atla skoraði jöfnunarmarkið gegn sínum gömlu félögum

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
FH tapaði stigum í fyrsta sinn síðan í apríl er liðið gerði 1-1 jafntefli við Val í 9. umferð Bestu deildar kvenna í kvöld.
Hafnfirðingar voru á frábæru skriði fyrir leikinn og höfðu unnið sex deildarleiki í röð.

FH-konur voru með mikla yfirburði gegn Val og þurftu aðeins tæpar þrjár mínútur til að komast yfir. Darraðadans skapaðist í teig Vals og Ída Marín Hermannsdóttir kom boltanum í netið.

FH hélt áfram að skapa sér færi en nýtti þau ekki og eins og svo oft áður var liðinu refsað fyrir það. Nadía Atladóttir, sem lék áður með FH, skoraði jöfnunarmarkið þegar hún mætti boltanum á fjærstönginni og skoraði.

FH-konur héldu áfram að skapa sér færi í byrjun síðari hálfleiks. Ída átti skot í stöng og Helena Maree Errington fór illa með gott færi eftir fyrirgjöf Andreu Ránar Snæfeld Hauksdóttur.

Þetta var einfaldlega ekki dagur FH fyrir framan markið. Ída átti skottilraun undir lokin sem fór framhjá og þá hefðu Valskonur getað stolið öllum stigunum í blálokin þegar Kimberley Dóra Hjálmarsdóttir kom sér í fína skotstöðu. Aldís Guðlaugsdóttir var hins vegar vel á verði og sá við henni.

Óvæntar lokatölur í Kaplakrika. FH mistókst að endurheimta toppsætið og er því í öðru sæti með 20 stig, á meðan Valur er í 8. sæti með 9 stig.

Sama niðurstaða hjá Grindavík/Njarðvík og Víkingi

Grindavík/Njarðvík og Víkingur skildu sömuleiðis jöfn, 1-1, á JBÓ-vellinum.

Víkingar voru öflugri í byrjun leiks. Jasmín Erla Ingadóttir kom sér í mjög góða stöðu en fór illa með færið og heimakonur náðu smám saman að vinna sig betur inn í leikinn.

Annars var lítið um að vera í fyrri hálfleik og staðan markalaus í leikhléi. Heimakonur mættu hins vegar ákveðnar til leiks í síðari hálfleik og komust verðskuldað yfir þegar Maci Nicole Teater skoraði eftir sendingu Hildar Katrínar Snorradóttur.

Grindavík/Njarðvík var líklegra til að bæta við en að fá á sig jöfnunarmark en engu að síður voru það gestirnir sem jöfnuðu þegar stundarfjórðungur var eftir. Freyja Stefánsdóttir slapp þá í gegn og afgreiddi boltann í stöngina og inn, algjörlega gegn gangi leiksins.

Freyja fékk annað færi til að skora en það var varið. Heimakonur lögðu allt í sölurnar til að ná í sigurmarkið undir lokin en allt kom fyrir ekki.

Lokatölur 1-1. Grindavík/Njarðvík er í 6. sæti með 12 stig en Víkingur í 7. sæti með 10 stig.

Úrslit og markaskorarar:

Grindavík/Njarðvík 1 - 1 Víkingur R.
1-0 Maci Nicole Teater ('58 )
1-1 Freyja Stefánsdóttir ('71 )
Lestu um leikinn

FH 1 - 1 Valur
1-0 Ída Marín Hermannsdóttir ('3 )
1-1 Nadía Atladóttir ('38 )
Lestu um leikinn
Víkingur náði í stig gegn Grindavík/Njarðvík

Víkingur náði í stig gegn Grindavík/Njarðvík

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Breiðablik9+1421
2FH9+1220
3Stjarnan9+817
4ÍBV9-314
5Þróttur R.9+213
6Grindavík/Njarðvík9-312
7Víkingur R.9-610
8Valur9-39
9Þór/KA9-66
10Fram9-154
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.