Fotbolti.net
23.06.26 - 22:09
Brynjar Ingi Erluson

HM: Englendingar jarðtengdir í Boston

Viðbrögð Harry Kane við dauðafærinu sem hann klúðraði undir lok leiks

Viðbrögð Harry Kane við dauðafærinu sem hann klúðraði undir lok leiks

Canon

Mynd: EPA

England 0 - 0 Gana
Englendingar fara ekki sælir frá Boston eftir markalaust jafntefli gegn Gana í annarri umferð L-riðils heimsmeistaramótsins í kvöld.

Enska liðið var mun sigurstranglegra fyrir leikinn og hafði Gana aldrei unnið leik gegn Englandi.

Ganverjar voru kannski ekki líklegir til stórræða í fyrri hálfleik en þeir náðu að drepa leikinn algjörlega og gáfu engin færi á sér. Tölfræðin segir sína sögu, því þetta var í fyrsta sinn á mótinu sem hvorugt liðið átti skot á markið í fyrri hálfleik.

Fyrri hálfleikurinn var vægast sagt tíðindalítill en það lifnaði þó yfir leiknum eftir hlé.

Fyrsta skot Englendinga á markið kom ekki fyrr en á 57. mínútu. Anthony Gordon átti þá skot sem fór tiltölulega beint á Benjamin Asare í marki Gana.

Næst ógnaði Elliot Anderson eftir frábærlega útfærða aukaspyrnu Declan Rice. Rice lyfti boltanum á fjærstöngina þar sem Anderson var aleinn, en Ganverjar komust fyrir skotið.

Sérstakt atvik kom upp á 68. mínútu. Caleb Yirenkyi fékk boltann inn fyrir vörn Englendinga og ætlaði sér framhjá Jordan Pickford, sem kom út á móti. Þeir skullu saman en aukaspyrnan var dæmd á Yirenkyi. Pickford hreinlega heppinn að vera ekki dæmdur brotlegur fá að líta rauða spjaldið.

Thomas Tuchel, þjálfari Englands, reyndi að hleypa meira lífi í sóknarleikinn með því að setja Bukayo Saka, Morgan Rogers og Eberechi Eze inn á, en líklega kom það aðeins of seint.

Gana fékk dauðafæri þegar um tíu mínútur voru eftir. Abdul Fatawu stal boltanum af Eze og kom honum í gegn á Adu, sem var í basli með að koma sér í skotstöðu áður en Ezri Konsa tæklaði hann. Adu fékk þó annað tækifæri til að skjóta en þá var Antoine Semenyo fyrir honum.

Sóknarleikur Gana var ryðgaður en varnarleikurinn nánast upp á tíu.

England hefði getað tekið öll stigin fimm mínútum fyrir leikslok. Fyrirgjöf kom frá hægri á varamanninn Nico O'Reilly, sem stangaði boltann í slá úr úrvalsfæri. Boltinn datt þaðan fyrir Harry Kane, sem þurfti aðeins að koma honum á markið, en hann þrumaði hátt yfir. Mjög ólíkt Kane, sem hefur verið einn skilvirkasti sóknarmaður heims síðustu ár.

Sex mínútum var bætt við venjulegan leiktíma en það dugði Englendingum ekki. Þeir þurftu að sætta sig við stig gegn Gana og bæði lið eru nú með fjögur stig í L-riðli fyrir lokaumferðina.

England mætir Panama í lokaleiknum á meðan Gana leikur gegn Króatíu.
Harry Kane fór illa með dauðafæri undir lokin

Harry Kane fór illa með dauðafæri undir lokin

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.