Vonsvikinn með ummæli Alvarez - „Þetta var dagur Messi og argentínska landsliðsins“

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Gil Marin, framkvæmdastjóri Atlético Madríd á Spáni, segist vonsvikinn með ummæli argentínska framherjans Julian Alvarez, sem lýsti yfir því að hann vildi fara frá félaginu.

TENGT EFNI
Alvarez varpar sprengju: Best fyrir alla að ég fari
Alvarez sagði í viðtali í gær að hann væri til í að fara, en Arsenal, Barcelona og Real Madrid hafa öll áhuga á honum.
Atlético hefur hins vegar verið fast á sínu. Hann er ekki til sölu nema félög virki 500 milljóna kaupákvæði í samningi hans.
Stjórnarmenn Atlético eru allt annað en sáttir við Alvarez og segja tímasetninguna hræðilega.
„Ég er ótrúlega vonsvikinn með ummæli hans. Þetta var ekki dagurinn til að koma með svona yfirlýsingar. Þetta var dagur Messi og argentínska landsliðsins, ekki hans.“
„Julian á sér draum en við stuðningsmenn Atlético eigum okkur líka draum. Það er rétt að hann hefur rætt við okkur en hann veit líka hver okkar staða er, því við höfum verið mjög skýr. Atlético vill ekki selja hann. Julian er stórkostlegur leikmaður og við erum stolt af því að hann spili fyrir okkur.“
„Barcelona er að vanvirða okkur og virðist halda að þeir geti gert lítið úr okkur, eins og við séum veikburða eða heimskir. En það sem þeir eru í raun að sýna heiminum er hegðun sem skilgreinir þetta félag.“
„Þeir ljúga að okkur, leikmanninum, fjölmiðlum og eigin stuðningsmönnum. Þeir reyna að fá alla til að trúa því að þeir séu búnir að ganga frá kaupum sem þeir hafa ekki efni á. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Barcelona hagar sér svona og fótboltaheimurinn veit það. Á síðasta ári reyndu þeir að gera svipað með Nico Williams og Athletic,“ sagði Marin við EFE.