23.07.16 - 11:00
Arnar Daði Arnarsson
Patrik Atla í Njarðvík (Staðfest)

Patrik Snær er kominn í Njarðvík.

Mynd: Njarðvík

Patrik Snær er kominn í Njarðvík.

Mynd: Njarðvík
Njarðvík hefur fengið Patrik Snæ Atlason til liðs við sig fyrir síðari hluta sumars í 2. deildinni.
Patrik gengur í raðir Njarðvíkur frá ÍR en hann lék 16 leiki með ÍR í 2. deildinni í fyrra og skoraði sex mörk. Hann hinsvegar meiddist undir lok síðasta tímabils og hefur ekkert komið við sögu í sumar.

Patrik þekkir ágætlega til hjá Njarðvík en hann lék með liðinu á undirbúningstímabilinu árið 2014 en varð fyrir því að meiðast illa og missti þar af leiðandi af tímabilinu það ár.
Hann gekk síðan til liðs við ÍR og lék með þeim eins og fyrr segir síðasta sumar en brotnaði í leik gegn Njarðvík síðasta sumar.
Njarðvík er í 8. sæti 2. deildarinnar og liðið mætir Hetti á heimavelli í dag. Patrik er kominn með leikheimild og er því löglegur með liðinu í leiknum á eftir.