23.07.17 - 12:27
Elvar Geir Magnússon
Freysi stýrir Íslandi í næstu undankeppni (Staðfest)

Freyr hefur þjálfað kvennalandsliðið síðan 2013.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Freyr Alexandersson heldur áfram sem landsliðsþjálfari Íslands eftir Evrópumótið. Þetta staðfesti hann í samtali við Fótbolta.net á æfingu íslenska liðsins í Hollandi í dag.
Orðrómur hefur verið uppi um að Freyr gæti látið af störfum eftir mótið þó hann sé samningsbundinn áfram út undankeppni HM.
Vitað er að félög í Pepsi-deild karla hafi verið að horfa til hans og í umræðunni að hann gæti breytt til eftir mótið.
Freyr blés á þær kjaftasögur að leikurinn gegn Austurríki á miðvikudag gæti verið hans síðasti með kvennalandsliðið. Freyr er samningsbundinn KSÍ áfram og mun ekki hætta.
„Það verður ekkert þannig. Ég stýri liðinu í haust það er alveg klárt,\" sagði Freyr. Ítarlegt viðtal við Frey er á leiðinni.
Í september hefst undankeppni Heimsmeistaramótsins og Freyr mun freista þess að koma íslenska kvennalandsliðinu í fyrsta sinn í lokakeppni HM. Ísland er í riðli með Þýskalandi, Tékklandi, Slóveníu og Færeyjum.
Eftir úrslit gærdagsins er ljóst að Ísland nær ekki því markmiði að komast upp úr riðli sínum á EM.