Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 23. júlí 2019 19:20
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
KR lánar Ástbjörn til Gróttu (Staðfest)
Ástbjörn í baráttunni við Telmo Castanheira í leik KR og ÍBV í sumar.
Ástbjörn í baráttunni við Telmo Castanheira í leik KR og ÍBV í sumar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
KR er búið að lána Ástbjörn Þórðarson í Gróttu út yfirstandandi keppnistímabil.

Ástbjörn hefur leikið fjóra deildarleiki fyrir KR á leiktíðinni auk þriggja leikja í Mjólkurbikarnum þar sem hann skoraði eitt mark. Ástbjörn byrjaði auk þess leik KR og Molde á Meistaravöllum síðastliðinn fimmtudag.

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Ástbjörn er lánaður frá KR en í fyrra var hann á láni hjá bæði ÍA og Víking Ólafsvík í Inkasso-deildinni.

Grótta er sem stendur í þriðja sæti Inkasso-deildarinnar og mætir á föstudag Þórsurum sem sitja í öðru sæti deildarinnar.
Athugasemdir
banner
banner