Fotbolti.net
23.07.19 - 19:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Lamarca semur við Kórdrengi (Staðfest)

Lamarca semur við Kórdrengi (Staðfest)
Canon

Mynd: Njarðvík

Njarðvík tilkynnti í upphafi mánaðar að félagið hefði losað framherjann Guillermo Gonzalez Lamarca undan samningi.

Lamarca hafði áhuga á því að spila áfram hér á landi og í dag var staðfest að hann er genginn í raðir Kórdrengja í 3. deildinni.

Kórdrengir eru í toppsæti 3. deildar og ætla sér sæti í 2. deild á komandi leiktíð.
Lamarca lék með Skallagrím í 4. deildinni í fyrra þar sem hann skoraði 20 mörk. Lamarca er uppalinn hjá Atletico Madrid.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.