Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 23. júlí 2019 08:30
Magnús Már Einarsson
Nabil Fekir til Real Betis (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Spænska félagið Real Betis hefur keypt miðjumanninn Nabil Fekir fra Lyon á 17,75 milljónir punda.

9,8 milljónir punda gætu bæst við kaupverðið síðar auk þess sem Lyon fær 20% af næstu sölu.

Í fyrra var Fekir nálægt því að ganga í raðir Liverpool á 53 milljónir punda en þau félagaskipti gengu ekki á síðustu stundu.

Orðrómur var um að Fekir hefði fallið á læknisskoðun en það var þó aldrei staðfest.

Fekir var fyrirliði Lyon en hann átti einungis eitt ár eftir af samningi og því ákvað félagið að selja hann núna.

Athugasemdir
banner
banner