Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   þri 23. júlí 2019 16:30
Magnús Már Einarsson
Shaw: Síðasta tímabil eyðilagði sumarfríið
Mynd: Getty Images
Luke Shaw, vinstri bakvörður Manchester United, segir að dapurt gengi liðsins síðastliðinn vetur hafi eyðilagt sumarfríið hjá sér.

Shaw var kominn í sumarfrí þegar Liverpool vann Tottenham í úrslitaleik Meistaradeildarinnar á meðan Chelsea vann Arsenal í úrslitum Evrópudeildarinnar.

„Það var mjög erfitt fyrir okkur alla að taka þessu því að þú náðir ekki að njóta þess að vera í sumarfríi þegar þú horfðir á úrslitaleik Meistaradeildarinnar og Evrópudeildarinnar og þar eru bara ensk lið," sagði Shaw.

„Þér líður ennþá ver fyrir vikið og enginn af okkur vill sjá þetta gerast aftur."

„Síðasta tímabil var gríðarleg vonbrigði. Önnur lið stóðu sig vel og voru að vinna titla á tíma þar sem við vorum komnir í frí. Það var mjög svekkjandi."

Athugasemdir
banner
banner
banner