Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 23. júlí 2019 06:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Skotmark Arsenal til Katar (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Snemma í júlímánuði var Arsenal orðað við Yacine Brahimi. Brahimi var þá nýrunninn út á samning hjá Porto og var því laus allra mála hjá félaginu.

Nú um þremur vikum seinna hefur það verið staðfest að Brahimi er genginn í raðir Al-Rayyan SC í Katar.

Brahimi er 29 ára vængmaður sem var í fimm ár hjá Porto.

Brahimi kom til Porto árið 2014 frá Granada og skoraði 39 deildarmörk í 148 leikjum fyrir Porto.

Brahimi er frá Alsír og var hluti af hópnum sem vann Afríkukeppnina á föstudaginn í síðustu viku.

Brahimi kom við sögu í tveimur leikjum Alsír í mótinu.


Athugasemdir
banner