Valur staðfesti í dag að félagið hafi lánað hinn efnilega Kristófer Jónsson til Venezia á Ítalíu í eitt ár.
Venezia fór upp í Serie A í sumar eftir að hafa unnið umspilið í Serie B. Hjá Venezia hittir Kristófer fyrir þrjá Íslendinga. Þeir Bjarki Steinn Bjarkason og Óttar Magnús Karlsson gengu í raðir félagsins í fyrra.
Félagið keypti svo Jakob Franz Pálsson á dögunum eftir að hafa fengið hann á láni frá Þór í vetur. Kristófer og Jakob hafa spilað saman í unglinglandsliðunum.
Kristófer er átján ára gamall og gekk í raðir Vals frá Haukum í vetur. Hann spilaði tíu leiki á undirbúningstímabilinu en hefur ekkert komið við sögu í sumar.
Kristófer var í byrjunarliði U19 í báðum leikjum liðsins gegn Færeyjum í júní.
#valurfotbolti #fotboltinet #arancioneroverde pic.twitter.com/QAvL7JehUC
— ValurFotbolti (@Valurfotbolti) July 23, 2021
Athugasemdir