Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   fös 23. ágúst 2019 19:14
Elvar Geir Magnússon
Pochettino: Það er heimskt fólk út um allt
Mauricio Pochettino.
Mauricio Pochettino.
Mynd: Getty Images
Mauricio Pochettino, stjóri Tottenham, tjáði sig um eitt heitasta umræðuefnið á Bretlandseyjum í dag: Hatursfull ummæli á samfélagsmiðlum.

„Þetta er ábyrgð fólksins. Þetta er hrikaleg staða. Það er að koma 2020 eftir nokkra mánuði," segir Pochettino.

„Heimurinn væri betri ef við myndum hugsa meira um Amazon frumskóginn, innflytjendur og fólkið sem situr við hlið okkar."

„Það er heimskt fólk út um allt og fólk sem felur sig bak við lyklaborðið. Þetta er óásættanlegt. Ef ég get barist gegn þessu þá mun ég gera það."

Sjá einnig:
Neville vill að fótboltamenn sniðgangi samfélagsmiðla
Athugasemdir
banner
banner