23.09.16 - 17:55
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
1. deild kvenna: Grindavík í Pepsi-deildina (Staðfest)

Grindavík er komið upp!

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Grindavík er komið upp!

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Grindavík 1 - 0 ÍR
1-0 Lauren Brennan (\'37 )
Rautt spjald: Emma Higgins, Grindavík (\'60 )
Lestu nánar um leikinn

Það var mikill hiti í mönnum þegar Grindavík og ÍR áttust við í leik um sæti í Pepsi-deild kvenna á næsta leiktímabili. Þetta var seinni leikur liðanna, en fyrri leikurinn endaði með 2-0 sigri Grindvíkinga og þær því í mjög góðum málum fyrir þennan leik.
Sú staða varð síðan enn betri þegar Lauren Brennan kom Grindavík yfir seint í fyrri hálfleiknum, nánar tiltekið á 37. mínútu. Hún komst ein í gegn og setti boltann fram hjá markverði ÍR-inga og staðan því orðin 3-0 samanlagt fyrir Grindavík.
Markvörður Grindavíkur, Emma Mary Higgins, gaf gestunum úr ÍR tækifæri þegar hún lét reka sig af velli á mjög heimskulegan hátt eftir um klukkutíma leik. Hún var of lengi að taka útspark og fékk dæmda á sig óbeina aukaspyrnu og gult spjald. Hún reyndi hvað hún gat til þess að tefja spyrnuna, en við það fékk dómarinn nóg og rak hana af velli. Heimskulegt svo ekki sé meira sagt.
En til allrar hamingju fyrir Higgins þá endaði leikurinn með 1-0 sigri Grindavíkur og samanlögðum 3-0 sigri í þessu einvígi. Síðar í kvöld þegar Haukar og Keflavík mætast verður það ljóst hvaða lið það verður sem fer upp með Grindavík og leikur í Pepsi-deild kvenna á næsta tímabili.