Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 23. september 2019 09:30
Brynjar Ingi Erluson
Lampard um Pulisic: Hann mun fá tækifæri
Christian Pulisic
Christian Pulisic
Mynd: Getty Images
Bandaríski landsliðsmaðurinn Christian Pulisic var ónotaður varamaður hjá Chelsea þriðja leikinn í röð er liðið tapaði 2-1 fyrir Liverpool í gær.

Chelsea keypti Pulisic frá Borussia Dortmund fyrir 58 milljón pund í janúar en lánaði hann aftur til þýska félagsins út tímabilið.

Hann var stjarna hjá Dortmund en hefur verið ónotaður varamaður í síðustu þremur leikjum hjá enska liðinu en Frank Lampard, stjóri Chelsea, ræddi við fjölmiðla um valið.

„Ég þarf að velja hópinn og hann spilaði í nokkrum leikjum fyrir þessa leiki. Willian er kominn aftur og hefur litið mjög vel út og svo ákvað ég að nota Mason Mount í dag. Ég þurfti bara að taka ákvarðanir."

„Pulisic mun fá tækifæri og hann er líka mjög ungur. Það tala allir um Mason, Tammy og Tomori en Pulisic er ungur og hann mun fá tækifæri,"
sagði Lampard.
Athugasemdir
banner
banner
banner