Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mið 23. október 2019 20:26
Ívan Guðjón Baldursson
Ashley Fletcher með klúður tímabilsins?
Mynd: Getty Images
Staðan er markalaus í leik Huddersfield og Middlesbrough þessa stundina en liðin eigast við í ensku Championship deildinni.

Aðeins stundarfjórðungur er eftir af leiknum og geta heimamenn í Huddersfield þakkað fyrir að hafa ekki lent undir í upphafi síðari hálfleiks.

Ryan Schofield varði meistaralega og datt boltinn beint fyrir Ashley Fletcher, sem var tvo metra frá opnu marki. Boltinn var skoppandi og sparkaði Fletcher undir knöttinn með þeim afleiðingum að hann fór yfir markið.

Ótrúlegt klúður hjá Fletcher sem ólst upp hjá Manchester United en fékk ekki tækifæri í ensku úrvalsdeildinni fyrr en hann skipti yfir til West Ham United sumarið 2016.


Athugasemdir
banner
banner