23.10.19 - 16:30
Magnús Már Einarsson
Forseti Napoli vill fá Zlatan

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Aurelio De Laurentiis, forseti Napoli, segist hafa áhuga á að fá Zlatan Ibrahimovic til félagsins í janúar.
Hinn 38 ára gamli Zlatan er að renna út af samningi hjá LA Galaxy og hann gæti snúið aftur í Serie A á nýju ári.

„Hann er vinur minn. Ég hitti hann í Los Angeles, ekki sem fótboltamann heldur sem venjulega manneskju því við vorum á sama hóteli," sagði De Laurentiis.
„Ég bauð honum í kvöldmat ásamt konu hans og börnum og við áttum ótrúlegan tíma."
„Það væri ósk mín að sjá hann í litum Napoli. Þetta er meira en ósk og þetta veltur á honum. VIð höfum rætt um þetta í nokkra mánuði."