Aston Villa og Leeds eigast við í 6. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í kvöld en leikurinn fer fram á Villa Park. Kalvin Phillips er ekki með Leeds í dag.
Dean Smith, stjóri Villa, heldur tryggð við liðið sem hefur unnið alla fjóra leiki sína til þessa en hann gerir enga breytingu á byrjunarliðinu.
Á meðan þarf Marcelo Bielsa að breyta liði sínu. Phillips er frá vegna meiðsla og þá þarf Luke Ayling að taka stöðu í miðverði þar sem Liam Cooper og Diego Llorente eru frá. Edgjan Alioski kemur inn í liðið og Pascal Struijk byrjar að öllum líkindum á miðjunni.
Það eru því alls konar tilfæringar í liði Leeds en leikurinn hefst klukkan 19:00.
Aston Villa: Martinez, Cash, Targett, Konsa, Mings, Douglas Luiz, McGinn, Barkley, Grealish, Trezeguet, Watkins.
Leeds: Meslier, Dallas, Ayling, Koch, Alioski, Struijk, Klich, Rodrigo, Costa, Harrison, Bamford.
Athugasemdir