„Besta leiðin til að byrja keppnina er að vinna 3-0 sigur, við vitum samt að við þurfum að bæta okkur," sagði Lucas Moura, einn af markaskorurum Tottenham, eftir sigur á LASK í gærkvöldi.
„Það er alltaf gott að skora, sérstaklega fyrir framherja, það er vinnan mín. Ef ég hjálpa liðsfélögunum er ég glaður, ef ég get skorað þá er ég enn glaðari."
Lucas var spurður á BT Sport út í titilvonir Tottenham á leiktíðinni.
„Ég veit að Jose Mourinho er sigurvegari og vill vinna titil hér. Ég held að hópurinn eigi skilið titil. Ég er mjög bjartsýnn fyrir þetta tímabil en við munum taka það skref fyrir skref. Við munum berjast fyrir titli því stuðningsmenn og félagið eiga það skilið."
Athugasemdir