23.11.12 - 06:00
Magnús Már Einarsson
Man Utd lánar Joshua King til Blackburn (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Blackburn hefur fengið framherjann Joshua King á láni frá Manchester United en samningurinn gildir þar til í janúar.
Þessi tvítugi Norðmaður er fyrsti leikmaðurinn sem Henning Berg fær til Blackburn síðan hann tók við stjórnartaumunum hjá liðunum.
King hefur leikið með aðalliði Manchester United en hann kom við sögu í fimm mínútur gegn Galatasaray í vikunni.
King hefur einnig á ferli sínum leikið með Preston North End, Borussia Moenchengladbach og Hull City á láni.
Hjá Blackburn mun hann keppa við Jordan Rhodes, Colin Kazim-Richards, Ruben Rochina og Nuno Gomes um sæti í framlínunni.

Heimild: BBC