Fotbolti.net
23.11.16 - 21:00
Jóhann Ingi Hafþórsson

Henrik Larsson hættur með Helsingsborg (Staðfest)

Henrik Larsson er hættur með Helsingborg

Henrik Larsson er hættur með Helsingborg

Canon

Mynd: Getty Images

Henrik Larsson hefur sagt upp störfum hjá sænska félaginu Helsingborg en hann var þjálfari liðsins.
Helsingborg féll úr sænsku deildinni um helgina og reiddi það stuðningsmenn félagsins mjög. Þeir reiddust svo mikið að þeir réðust inn á völlinn og veittust að bæði Henrik og syni hans, Jordan Larsson.

Grímuklæddir minn réðust þá inn á völlinn, tóku Jordan úr treyjunni sinni og svo virtist sem einn þeirra hafi kýlt framherjann. Stólum og fánum var svo kastað inn á völlinn í áttina að feðgunum en Helsingborg tapaði fyrir Halmstads í úrslitaleik um veru í deildinni.

Larsson var mjög brugðið eftir þetta og nú hefur hann sagt upp störfum. Helsingborg endaði í 8. sæti á fyrsta tímabili Larsson með liðið en hann gat ekki komið í veg fyrir fall í ár.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.