Fotbolti.net
23.11.18 - 12:30
Magnús Már Einarsson

Álftanes tekur sæti í 3. deild (Staðfest)

Fyrrum landsliðsmaðurinn Marel Baldvinsson þjálfar Álftanes.

Fyrrum landsliðsmaðurinn Marel Baldvinsson þjálfar Álftanes.

Canon

Mynd: Úr einkasafni

Álftanes tekur sæti í 3. deild næsta sumar. Þetta var staðfest á stjórnarfundi hjá KSÍ í gær.

Höttur og Huginn tilkynntu í síðustu viku að þau verði með sameiginlegt lið í 3. deildinni næsta sumar en þau féllu bæði úr 2. deildinni í ár.
Fjölgað verður úr tíu liðum í tólf í 3. deildinni á næsta tímabili en af þeim sökum féll einungis eitt lið úr deildinni í ár og þrjú lið fóru upp úr 4. deildinni.

Ægir endaði í neðsta sæti í 3. deildinni í sumar á meðan Álftanes endaði í 4. sæti í 4. deildinni.

KSÍ hefur nú staðfest að það verði Álftanes sem tekur sætið sem losnaði í 3. deildinni við sameininguna.

Liðin í 3. deild næsta sumar
Höttur/Huginn
KF
Vængir Júpíters
KH
Einherji
KV
Augnablik
Sindri
Reynir S.
Skallagrímur
Kórdrengir
Álftanes
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.