Fotbolti.net
23.11.18 - 13:43
Arnar Helgi Magnússon

Kristófer Páll í Keflavík (Staðfest)

Kristófer Páll Viðarsson.

Kristófer Páll Viðarsson.

Canon

Mynd: Ingunn Hallgrímsdóttir

Kantmaðurinn Kristófer Páll Viðarsson er genginn til liðs við Keflavík og gerir tveggja ára samning við liðið. Kristófer lék með Selfoss í sumar en eins og kunnugt er féll liðið niður í 2. deild.
„Ég er mjög sáttur með að vera kominn í Keflavík. Þjálfararnir eru ástæðan fyrir valinu," sagði Kristófer við Fótbolta.net.

„Ég er búinn að þekkja Eystein (Húna Hauksson) mjög lengi og veit hvernig hann er. Ég er búinn að taka nokkrar æfingar með Jankó (Milan Stefán Jankovic) og hef heyrt góða hluti um hann. Ég held að þeir geti hjálpað mér að verða betri í því sem ég er góður í og bæta það sem ég þarf að bæta."

Kristófer Páll er fæddur árið 1997 en hefur spilað fyrir Leikni F. stærstan hluta feril síns. Hann gekk til liðs við Fylki fyrir tímablið 2017 en lenti þá í erfiðum meiðslum og spilaði einungis einn leik með félaginu í bikarkeppninni.

Hann gekk til liðs við Selfoss fyrir síðasta tímabil en hann spilaði 23 leiki fyrir liðið í sumar og skoraði fimm mörk ásamt því að leggja upp nokkur.

Kristófer hefur spilað 105 meistaraflokksleiki á sínum ferli og skorað í þeim 37 mörk.

Keflavík féll úr Pepsi-deildinni í sumar og leikur í Inkasso-deildinni á næsta ári.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.