23.11.19 - 13:56
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Sæþór Olgeirsson í Völsung (Staðfest)


Mynd: Völsungur


Mynd: Völsungur
Hinn 21 árs gamli Sæþór Olgeirsson er snúinn heim til Húsavíkur en hann skrifaði í dag undir tveggja ára samning við Völsung.
Sæþór hefur undanfarin ár verið á mála hjá KA á Akureyri.
Þrátt fyrir ungan aldur hefur Sæþór leikið 88 meistaraflokksleiki með Völsungi og 13 fyrir KA. Sæþór hefur skorað 36 mörk fyrir Völsung.
Sæþór hefur undanfarin ár verið á mála hjá KA á Akureyri.
Þrátt fyrir ungan aldur hefur Sæþór leikið 88 meistaraflokksleiki með Völsungi og 13 fyrir KA. Sæþór hefur skorað 36 mörk fyrir Völsung.
„Við höfum saknað leikmanns eins og Sæþórs og hreinlega bara saknað hans, þessi tvö ár sem hann hefur verið í burtu. Hann er gríðarlegur fengur fyrir liðið og félagið og ég tel það ákaflega mikilvægt að okkur hafi tekist að fá hann heim. Sæþór styrkir okkur mikið fyrir baráttuna í 2.deildinni næsta sumar,“ sagði Jóhann Kristinn Gunnarsson, þjálfari Völsungs, eftir að Sæþór skrifaði undir samninginn.
Tilkynning Völsungs:
Völsungur fagnar því gríðarlega að fá jafn frambærilegan leikmann aftur heim til félagsins til að berjast með liðinu í 2.deild næsta sumar. Við bjóðum Sæþór hjartanlega velkominn.
Tilkynning Völsungs:
Völsungur fagnar því gríðarlega að fá jafn frambærilegan leikmann aftur heim til félagsins til að berjast með liðinu í 2.deild næsta sumar. Við bjóðum Sæþór hjartanlega velkominn.
Heimild: 640.is
