23.12.16 - 11:00
Jóhann Ingi Hafþórsson
Oscar fer til Kína í janúar (Staðfest)

Oscar fer til Kína.

Mynd: Getty Images

Oscar fer til Kína.

Mynd: Getty Images
Chelsea hefur staðfest að Brasilíumaðurinn Oscar mun ganga til liðs við Kínverska félagið Shangai SIPG fyrir um 60 milljónir punda.
Brassinn mun yfirgefa enska félagið í janúar en þá opnast félagsskiptaglugginn. Einu ári áður fór Ramires, þáverandi leikmaður Chelsea til Jingsu Suning.
Chelsea fékk Oscar til liðsins fyrir um 20 milljónir punda og hagnast þeir því um 40 milljónir punda á honum.
„Ég er mjög ánægður með að fara til SIPG. Þetta er mikilvægur dagur fyrir mig og fjölskylduna mína í Kína,\" sagði Oscar.
Oscar fór til Chelsea árið 2012 og vann ensku úrvalsdeildina, Evrópudeildina og enska deildabikarinn rúmlega fjórum árum sem hann var hjá félaginu. Hann hefur hins vegar aðeins spilað 11 leiki fyrir Antonio Conte á leiktíðinni. Brassinn skoraði 38 mörk í 203 leikjum fyrir Chelsea.
Miðjumaðurinn verður einn allra launahæsti leikmaður heims í Kína.