23.12.16 - 18:08
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Stóri Sam tekur við Crystal Palace (Staðfest)

Allardyce er kominn með nýtt starf

Mynd: Getty Images

Allardyce er kominn með nýtt starf

Mynd: Getty Images
Sam Allarcye, stundum kallaður Stóri Sam, hefur verið ráðinn knattspyrnustjóri Crystal Palace, en hann tekur við starfinu af Alan Pardew, sem var rekinn í gær.
Samkvæmt frétt frá BBC gerir Allardyce tveggja og hálfs árs samning við Palace. Hann var síðast landsliðsþjálfari Englands, en hann var hins vegar rekinn úr því starfi eftir aðeins einn leik.

Rannsóknarblaðamenn frá Telegraph sátu fundi með Allardyce þar sem þeir þóttust vera erlendir viðskiptamenn. Allardyce sagði marga mjög óheppilega hluti en blaðamennirnir tóku allt samtalið upp og birtu í lok september. Í kjölfarið hætti Sam sem landsliðsþjálfari.
Alan Pardew var rekinn sem stjóri Crystal Palace í gær, en liðið er sem stendur í 17. sæti ensku úrvalsdeildarinnar og hefur aðeins unnið einn af síðustu ellefu leikjum sínum.
Allardyce var mættur á æfingasvæði Palace strax í dag og ræddi þar við stjórnarformann félagsins, Steve Parish. Viðræður gengu vel og fékk Allardyce starfið í kjölfarið.
Þessi 62 ára gamli knattspyrnustjóri mun stýra æfingu liðsins á morgun og þá verður hann mættur á hliðarlínuna þegar Crystal Palace mætir Watford annan í jólum.

#CPFC are pleased to announce Sam Allardyce as the new First Team Manager on a two-and-a-half year contract - https://t.co/fKHsWCuAey 🔴🔵 pic.twitter.com/nkA3V7z3qX
— Crystal Palace F.C. (@CPFC) December 23, 2016