23.12.18 - 15:45
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Peter Bosz er nýr stjóri Leverkusen (Staðfest)

Peter Bosz er tekinn við Leverkusen.

Mynd: Getty Images

Peter Bosz er tekinn við Leverkusen.

Mynd: Getty Images
Bayer Leverkusen er búið að ráða fyrrum stjóra Leverkusen og Ajax, Peter Bosz, sem nýjan stjóra sinn.
Leverkusen er í níunda sæti þegar þýska Bundesligan er komin í vetrarfrí og þrátt fyrir þriðja sigurinn í fjórum deildarleikjum gegn Hertha Berlín í gær þá ákvað félagið að reka Heiko Herrlich.
Félagið var ekki lengi að tilkynna eftirmann hans. Bosz náði frábærum árangri með Ajax og kom liðinu meðal annars í úrslitaleik Evrópudeildarinnar 2016 þar sem liðið tapaði gegn Manchester United. Hann var í kjölfarið ráðinn til Dortmund en þaðan var hann rekinn í desember á síðasta ári.
Bosz skrifar undir samning til 2020 við Leverkusen.
„Bosz stendur fyrir hröðum sóknarbolta. Hann hefur alltaf sýnt sérstaka ástríðu fyrir að vinna með ungum leikmönnum, þess vegna passar hann vel inn hjá okkur," sagði Simon Rolfes, yfirmaður knattspyrnumála hjá Leverkusen.

Herzlich Willkommen bei #Bayer04, Peter Bosz!
— Bayer 04 Leverkusen (@bayer04fussball) December 23, 2018
Alle Infos: https://t.co/U5Eb0utx6C pic.twitter.com/nq6IgxObAG