24.01.17 - 15:00
Magnús Már Einarsson
Andri Þór í Gróttu (Staðfest)

Andri Þór Magnússon.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Andri Þór Magnússon.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Grótta hefur fengið varnarmanninn Andra Þór Magnússon í sínar raðir frá Fjarðabyggð.
Hinn 28 ára gamli Andri hefur leikið allan sinn feril með Fjarðabyggð og nokkrum sinnum farið upp og niður deildir með liðinu.

Andri hefur samtals spilað 212 leiki með Fjarðabyggð í 1, 2 og 3. deild en hann hefur skorað sex mörk í þeim.
Hann getur bæði leikið í hjarta varnarinnar sem og í stöðu bakvarðar.
„Andri Þór er öflugur varnarmaður með góða reynslu sem mun nýtast ungu Gróttuliði í Inkasso deildinni í sumar,\" segir í fréttatilkynningu frá Gróttu.
Andri hefur æft með Gróttu að undanförnu en hann spilaði með liðinu í 2-2 jafntefli gegn Haukum í fyrsta leik í Fótbolta.net mótinu á föstudaginn.

Andri Þór og Sölvi Snær Magnússon varaformaður knattspyrnudeildar Gróttu

Mynd: Grótta