24.01.17 - 14:00
Magnús Már Einarsson
Granada fær framherja frá Dortmund (Staðfest)

Adrian Ramos.

Mynd: Getty Images

Adrian Ramos.

Mynd: Getty Images
Sverrir Ingi Ingason hefur fengið nýjan liðsfélaga hjá spænska félaginu Granada en framherjinn Adrian Ramos er kominn á láni frá Borussia Dortmund út tímabilið.
Dortmund hefur einnig samþykkt að selja Ramos til Chongqing Lifan í Kína í sumar en hann mun kosta tólf milljónir evra.
Dortmund hefur einnig samþykkt að selja Ramos til Chongqing Lifan í Kína í sumar en hann mun kosta tólf milljónir evra.
Ramos á að styrkja Granada í botnbaráttunni á Spáni. Kolumbíumaðurinn hefur einungis byrjað fjóra leiki með Dortmund á tímabilinu og hann fékk leyfi til að fara frá félaginu þó þjálfarinn Thomas Tuchel hafi verið svekktur að missa hann úr hópnum.
Ramos er frá Kolumbíu en hann hefur skorað 13 mörk í 52 leikjum með Dortmund síðan hann kom til félagsins frá Hertha Berlin árið 2014. Áður hafði hann skoraði 58 mörk í 157 leikjum með Hertha.
Ramos er frá Kolumbíu en hann hefur skorað 13 mörk í 52 leikjum með Dortmund síðan hann kom til félagsins frá Hertha Berlin árið 2014. Áður hafði hann skoraði 58 mörk í 157 leikjum með Hertha.
