24.01.17 - 11:37
Magnús Már Einarsson
Lescott til Sunderland (Staðfest)

Mynd: Sunderland

Mynd: Sunderland
Sunderland hefur fengið varnarmanninn reynda Joleon Lescott í sínar raðir.
Hinn 34 ára gamli Lescott hefur æft með Sunderland að undanförnu og hann hefur nú gert samning við félagið út tímabilið.

Lescott var án félags en hann losnaði undan samningi hjá AEK Aþenu á dögunum eftir misheppnaða dvöl í Grikklandi.
David Moyes, stjóri Sunderland, var stjóri Lescott hjá Everton á sínum tíma og hann vonast til að leikmaðurinn geti hjálpað til í fallbaráttunni sem er framundan.
Lescott hefur á ferli sínum einnig leikið með Wolves, Manchester City, WBA og Aston Villa.