24.01.17 - 07:30
Kristófer Kristjánsson
Tveir leikmenn í Þrótt Voga (Staðfest)

Ivan Jugovic

Mynd: Þróttur Vogum

Ivan Jugovic

Mynd: Þróttur Vogum
Þróttur Vogum hefur bætt við sig tveim leikmönnum fyrir komandi leiktíð.
Ivan Jugovic og Marteinn Urbancic hafa skrifað undir samning við Þrótt. Ivan kemur frá Grindvíkingum en var á láni hjá Reyni Sandgerði síðasta sumar.
Marteinn á svo leiki með ÍR, Haukum og Reyni S. en Tómas Urbancic, bróðir Marteins, er nú þegar leikmaður Þróttara og munu þeir bræður því vera liðsfélagar á komandi sumri.
Marteinn kemur til Þróttar í maí þar sem hann er sem stendur í námi í Bandaríkjunum.