Fundað um Pochettino - Man City tryggir sér undrabarn - Arsenal ætlar að styrkja hópinn
   fim 24. janúar 2019 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Jesus Suarez í Fjarðabyggð (Staðfest)
Jesus Suarez
Jesus Suarez
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fjarðabyggð kynnti í gær nýjan leikmann en Jesus Suarez er kominn til félagsins frá ÍR.

Suarez er 30 ára gamall og uppalinn á Spáni en ásamt því að hafa spilað í heimalandinu þá hefur hann leikið í Kólumbíu og Þýskalandi.

Hann hefur spilað á Íslandi síðustu þrjú árin á Íslandi en hann kom til Leiknis F. frá Þýskalandi áður en hann samdi við ÍR seinni hluta síðasta tímabils.

Hann er nú kominn í Fjarðabyggð og mun hann leika með liðinu í sumar.

Hann á að baki 63 leiki og 10 mörk í deild- og bikar hér á landi.
Athugasemdir
banner