24.02.19 - 19:20
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Deildabikarinn: Man City meistari eftir vítakeppni

City er deildabikarmeistari.

Mynd: Getty Images

Fær Sarri sparkið?

Mynd: Getty Images

City er deildabikarmeistari.

Mynd: Getty Images
Chelsea 0 - 0 Manchester City
Vítaspyrnukeppnin (3-4):
0-0 Jorginho klúðraði
0-1 Ilkay Gundogan skoraði
1-1 Cesar Azpilicueta skoraði
1-2 Sergio Aguero skoraði
2-2 Emerson skoraði
2-2 Leroy Sane klúðraði
2-2 David Luiz klúðraði
2-3 Bernardo Silva skoraði
3-3 Eden Hazard skoraði
3-4 Raheem Sterling skoraði
Vítaspyrnukeppnin (3-4):
0-0 Jorginho klúðraði
0-1 Ilkay Gundogan skoraði
1-1 Cesar Azpilicueta skoraði
1-2 Sergio Aguero skoraði
2-2 Emerson skoraði
2-2 Leroy Sane klúðraði
2-2 David Luiz klúðraði
2-3 Bernardo Silva skoraði
3-3 Eden Hazard skoraði
3-4 Raheem Sterling skoraði
Manchester City er sigurvegarinn í enska deildabikarnum annað árið í röð. City hafði betur gegn Chelsea á Wembley í dag. Leikurinn fór alla leið í vítaspyrnukeppni.
Þegar þessi lið mættust fyrir nokkrum dögum þá vann Manchester City 6-0 sigur. Leikurinn í dag var nú aðeins jafnari og var Chelsea ef eitthvað er hættulegri aðilinn.
Staðan var þó markalaus að loknum venjulegum leiktíma og að lokinni framlengingu. Undir lok framlengingarinnar ætlaði Chelsea að skipta markverðinum Kepa Arrizabalaga út af vegna meiðsla, en hann neitaði að fara út af. Maurizio Sarri, stjóri Chelsea, var alveg brjálaður.
Það var mikil pressa á Kepa í vítaspyrnukeppninni eftir það sem hafði átt sér stað í lok framlengingarinnar. Honum tókst að verja eina vítaspyrnu, en það var ekki nóg þar sem Chelsea klikkaði tvisvar. Kepa hefði átt að verja tvisvar. Hann missti vítaspyrnnu Sergio Aguero inn.
City vann vítaspyrnukeppnina 4-3 og er því deildabikarmeistari annað árið í röð. City á enn möguleika á því að vinna fernu.
Nú er spurning hvort Maurizio Sarri fái sparkið. Sögusagnir hafa verið um að hann yrði rekinn ef Chelsea myndi tapa í dag og sú varð raunin.