Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   mán 24. febrúar 2020 09:00
Ívan Guðjón Baldursson
Zlatan til Lingard og Pereira: Skal kenna ykkur að skora
Mynd: Getty Images
Zlatan Ibrahimovic spilaði fyrir Manchester United áður en hann hélt til LA Galaxy í Bandaríkjunum. Hann fylgist enn með félaginu og tjáir sig stundum um gang mála.

Hann er ekki sáttur með framlag Jesse Lingard og Andreas Pereira á tímabilinu og gerði skemmtilegt myndband þar sem hann býður þeim einkakennslu í markaskorun.

„Tuttugu leikir, núll mörk. Hvað í andskotanum er það? Ég hef aldrei heyrt svona áður," sagði Zlatan.

„Ef þið viljið læra hvernig á að skora þá komið þið í skólann minn. Ég skal kenna ykkur að skora."

Zlatan skoraði 29 mörk í 53 leikjum hjá Man Utd. Hann leikur fyrir AC Milan þessa dagana og er búinn að skora þrjú mörk í níu leikjum.


Athugasemdir
banner
banner
banner