Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 24. mars 2020 16:30
Elvar Geir Magnússon
Chelsea boðið að kaupa Coutinho
Philippe Coutinho.
Philippe Coutinho.
Mynd: Getty Images
Barcelona ku hafa boðið Chelsea möguleika á að kaupa Brasilíumanninn Philippe Coutinho í sumar.

Sagt er að Chelsea vilji þó frekar fá hann lánaðan en að ganga frá kaupum.

Coutinho hefur ekki náð að sýna sínar bestu hliðar síðan hann var keyptur til Barcelona á háar fjárhæðir frá Liverpool 2018. Hann var lánaður til Bayern München.

Liverpool hefur ekki áhuga á að kaupa Coutinho til baka.

Coutinho hefur meðal annars verið orðaður við Arsenal, Tottenham og Manchester United.
Athugasemdir
banner
banner
banner