Sturla Sagatun Kristjánsson hefur fengið félagaskipti í ÍBV en hann kemur frá Bodö/Glimt.
Sturla er fæddur árið 2006 og var í vetur á reynslu hjá bæði Vestra og Val.
Hann hefur verið í U15, U17 og U19 hópum og á að baki fimm leiki fyrir yngri landsliðin.
Sturla er fæddur árið 2006 og var í vetur á reynslu hjá bæði Vestra og Val.
Hann hefur verið í U15, U17 og U19 hópum og á að baki fimm leiki fyrir yngri landsliðin.
Sturla er miðjumaður sem hefur spilað með U19 liði Bodö/Glimt. Hann á að baki einn leik með aðalliði Bodö/Glimt, lék gegn Brönnöysund í norska bikarnum snemma árs 2024.
Sturla á að baki fimm leiki fyrir yngri landslið Íslands, þar af þrjá fyrir U19 á æfingamóti 2024.
Hann lék þrjá leiki í Evrópukeppni unglingaliða með Bodö/Glimt fyrir áramót og samkvæmt Transfermarkt var honum stillt upp sem djúpum miðjumanni.
ÍBV er með eit stig eftir fyrstu þrjár umferðirnar og mætir ÍBV liði Fram á útivelli á mánudagskvöld í 4. umferð.




