Stuðningsmenn Víkings kveiktu tvívegis á blysum í leik liðsins gegn Stjörnunni í gær. Blysunum var komið fyrir fyrir aftan varamannaskýlin og þannig utan sjálfs vallarsvæðisins, eflaust til þess að komast hjá sektum.
Víkingur var nýverið sektað um 150 þúsund krónur vegna tveggja blysa í leik gegn Breiðabliki á Víkingsvelli í fyrstu umferð.
Í athugasemdum félagsins við úrskurðinn var bent á að um reykblys hefði verið að ræða, sem teljast almennt skaðlaus þar sem þau mynda reyk en ekki eld. Aga- og úrskurðarnefnd KSÍ gerir þó ekki greinarmun á slíkum blysum og öðrum og var sektin því óbreytt.
Rætt var um blysanotkunina í Innkastinu hér á Fótbolta.net.

„Víkingar voru sektaðir fyrir blysanotkun í fyrstu umferð og þeir eru ósáttir við það. Vegna þess að þetta er eitthvað duft. Ég hélt að þetta væri bannað út af eldhættu. Ég skil pirring Víkinga vel,“ sagði Valur Gunnarsson.
„Þeir kveiktu í blysum fyrir utan vallarsvæðið eftir fyrstu tvö mörkin. Í seinna skiptið stoppar Ívar Orri dómari leikinn til þess að leyfa reiknum að fara út af. Sem er alveg fáránlegt því reykurinn var ekki það mikill. Það var ekkert að skyggninu og ég kalla þetta bara leikþátt,“ kom meðal annars fram.
Þá tók Valur Gunnarsson orðið og ræddi um gæslumann sem ofbauð vegna blysanotkunar: „Núna erum við í þannig deild að við förum langt á sjálfboðaliðum. Ég elska þegar menn taka starfinu alvarlega. Þættinum barst bréf og í því stóð að gæslumaður Víkings fór heim eftir seinna blysið.
Hann var mjög ósáttur að menn voru að kveikja í blysum þarna og sagði; Ég læt ekki bjóða mér þetta, og fór heim,“ sagði Valur léttur og hló.