Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   fös 24. maí 2019 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Heimild: KSÍ 
Fótbolti fyrir stúlkur með sérþarfir
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Í sumar munu KSÍ, ÍF og Knattspyrnufélagið Fram standa fyrir æfingum fyrir stúlkur með sérþarfir, þ.e. stúlkur sem eiga við þroskahömlun, líkamlega hömlun eða andleg veikindi.

Það verða tvær æfingar á viku og hefjast þær 13. júní. Þær munu fara fram á æfingasvæði Fram í Safamýri.

Thelma Karítas Halldórsdóttir mun sjá um þjálfun stúlknanna. Hún er í þjálfarateymi Breiðabliks og með B-þjálfararéttindi hjá KSÍ.

„Markmiðið er að fjölga stúlkum með sérþarfir í knattspyrnu. Stúlkum með þrokahömlun, líkamlega hömlun og andleg veikindi," segir í sameiginlegri yfirlýsingu frá KSÍ, ÍF og Fram.

Kynning á verkefninu verður sunnudaginn 26. maí kl. 11:00-12:00 og miðvikudaginn 29. maí kl. 17.00-18:00 á æfingasvæði Fram í Safamýri. Þar koma landsliðskonur í heimsókn og boðið verður upp á skemmtilegar knattþrautir.

„Komdu í fótbolta og taktu vinkonu, mömmu eða systur þína með þér."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner