Fotbolti.net
30.09.26 - 05:55
Brynjar Ingi Erluson

Meistaradeild kvenna í kvöld - Thelma mætir Juventus og Glódís í Portúgal

Glódís og Bayern mæta Benfica

Glódís og Bayern mæta Benfica

Canon

Mynd: EPA

Kvennaboltinn
Önnur umferð deildarkeppni Meistaradeildar Evrópu í kvennaflokki hefst í dag.
Thelma Karen Pálmadóttir og stöllur hennar í sænska meistaraliðinu Häcken mæta ítalska stórliðinu Juventus klukkan 16:45. Häcken tapaði í fyrstu umferð keppninnar og fær því tækifæri til að sækja sín fyrstu stig í dag.

Glódís Perla Viggósdóttir verður væntanlega í hjarta varnarinnar hjá Bayern München sem heimsækir Benfica klukkan 19:00.

Bayern gerði 2-2 jafntefli við Manchester City í fyrstu umferð keppninnar.

Spánar- og Evrópumeistarar Barcelona heimsækja Roma og þá fer Arsenal í heimsókn til Paris FC.

Leikir dagsins:
16:45 Roma - Barcelona
16:45 Häcken - Juventus
16:45 Paris - Arsenal
19:00 Lyon - Chelsea
19:00 SL Benfica - Bayern
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.