Fotbolti.net
29.09.26 - 23:48
Kári Snorrason

Heiður að spila með Gylfa - „Gaf okkur þvílíkt mikið“

Auglýsing
Ísak Bergmann Jóhannesson.

Ísak Bergmann Jóhannesson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Eimskip
Ísland vann 0-3 útisigur á Lúxemborg í C-deild Þjóðadeildarinnar fyrr í kvöld. Ísland er á toppi riðilsins nú þegar liðin fjögur hafa öll leikið tvo leiki.

Ísak Bergmann Jóhannesson var að vonum ánægður með úrslit kvöldsins er hann ræddi við Fótbolta.net eftir leik.
Lestu um leikinn: Lúxemborg 0 - 3 Ísland
Ísak var spurður hvað hefði helst verið öðruvísi í leik kvöldsins en í jafnteflinu gegn Eistlandi síðastliðinn laugardag.

„Ég held að við höfum einfaldað leikinn okkar. Orri og Andri eru tveir gríðarlega góðir framherjar. Við spiluðum aðeins lengra á þá og aftur fyrir vörn Lúxemborgar. Stefán var með góða langa bolta. Það var meiri margbreytileiki í okkar leik - reyndum ekki bara að spila á milli línanna,“ sagði Ísak.

Gylfi Þór Sigurðsson kom inn í byrjunarlið Íslands í dag og segir Ísak það heiður að spila með honum.

„Ég held að það hjálpaði mér og Hákoni líka. Það er bara geggjað að spila með honum. Hann er besti landsliðsmaður sögunnar, að fá að spila með honum er heiður. Við gerðum þetta gríðarlega vel saman. Hann gaf liðinu þvílíkt mikið í leiknum, gaf okkur jafnvægi og gat ýtt Hákoni aðeins framar.“

Ísland mætir Búlgaríu næstkomandi laugardag. „Núna þurfum við að endurheimta vel og setja einbeitinguna á næsta leik. Við þurfum að gera betur á heimavelli, heimaleikurinn var ekki nægilega góður. Við þurfum að gera betur gegn Búlgaríu,“ sagði Ísak að lokum.

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.
Heiður að spila með Gylfa.

Heiður að spila með Gylfa.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.