Fotbolti.net
24.05.19 - 20:15
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Kristján Ómar hættir með Hauka (Staðfest)

Kristján Ómar hættir með Hauka (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Bára Dröfn Kristinsdóttir

Kristján Ómar Björnsson hefur látið af störfum sem þjálfari meistaraflokks karla hjá Haukum.

Kristján óskaði eftir því að fá að láta af störfum og knattspyrnudeild Hauka varð að þeirri ósk Kristjáns.

Hilmar Trausti Arnarson og Hólmsteinn Gauti Sigurðsson, aðstoðarmenn Kristjáns, láta einnig af störfum.

Búi Vilhjálmur Guðmundsson, þjálfari KÁ, varaliðs Hauka, tekur tímabundið við þjálfun Hauka.

Haukar eru með tvö stig eftir fjórar umferðir og sitja í næst neðsta sæti Inkasso deildar karla.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.