24.05.19 - 13:30
Elvar Geir Magnússon
Umtiti orðaður við Arsenal

Samuel Umtiti.

Mynd: Getty Images

Samuel Umtiti.

Mynd: Getty Images
Arsenal vill styrkja vörn sína í sumar og hefur áhuga á að fá Samuel Umtiti frá Barcelona.
Mirror segir að Arsenal þurfi að tryggja sér Meistaradeildarsæti til að eiga möguleika á að fá franska miðvörðinn.
Til að komast í Meistaradeildina þarf Arsenal að vinna Chelsea í úrslitaleik Evrópudeildarinnar.

Umtiti var í stóru hlutverki undir stjórn Ernesto Valverde tímabilið 2017-18 og lék vel með Frökkum á HM í Rússlandi.
En snemma á þessu ári meiddist hann illa á hné og missti sæti sitt í byrjunarliðinu til Clement Lenglet.
Nú vonast Barcelona til að fá Matthijs de Ligt, fyrirliða Ajax, og er þá tilbúið að selja Umtiti.
Sögusagnir eru í gangi um að Laurent Koscielny, fyrirliði Arsenal, sé að íhuga sína framtíð. Hann á ár eftir af samningi sínum.