Fotbolti.net
24.05.22 - 22:23
Brynjar Ingi Erluson

Sevilla ætlar ekki að kaupa Martial

Anthony Martial gat lítið í Sevilla-treyjunni

Anthony Martial gat lítið í Sevilla-treyjunni

Canon

Mynd: EPA

Franski sóknarmaðurinn Anthony Martial mun þurfa að finna sér nýtt félag þegar sumarglugginn opnar en spænska félagið Sevilla ætlar ekki að kaupa hann frá Manchester United.
Martial, sem er 26 ára gamall, kom til Sevilla á láni frá Manchester United í janúar en spænska félagið fékk ekki kauprétt á honum.

Franski sóknarmaðurinn náði sér aldrei á strik. Hann lagði upp eitt mark í níu deildarleikjum og skoraði eitt mark í 16-liða úrslitum Evrópudeildarinnar en missti mikið úr vegna meiðsla.

Hann mun snúa aftur til United í sumar en Sevilla hefur ekki áhuga á að kaupa hann.

Martial er ekki í plönum Erik ten Hag hjá United og þarf hann því að finna sér nýtt félag í sumarglugganum.

„Anthony Martial mun snúa aftur til Man Utd. Við eyddum mikilvægum peningum í að fá hann en þetta gekk ekki upp og hann var mikið meiddur. Við ætlum ekki að kaupa hann," sagði Jose Castro, forseti Sevilla.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.