„Við erum gríðarlega svekktar ef ég á að segja alveg eins og er. Við fáum haug af færum sem við nýtum ekki og það var gríðarlega svekkjandi að fá á sig þessa vítaspyrnu,“ sagði Anna María Friðgeirsdóttir, fyrirliði Selfoss, eftir 1-1 jafntefli við Fylki á útivelli.
Lestu um leikinn: Fylkir 1 - 1 Selfoss
„Hún bara sparkar boltanum til hliðar og hleypur inn í markmanninn. Hún (Kelsey markvörður) getur ekkert stoppað sig og hún (Ída Marín) er aldrei með vald á boltanum, hún er búin að missa hann frá sér,“ svaraði fyrirliðinn þegar hún var spurð nánar út í atvikið.
„Við vorum búnar að stjórna þessum fyrri hálfleik og það er ömurlegt að fá þetta svona í andlitið. Okkur fannst við alveg gera tilkall til þess að fá vítaspyrnu í seinni hálfleik og fáum ekkert.“
Anna María vísaði þá til atviks þar sem Grace Rapp féll við í vítateig Fylkis.
„Hún tók filmmaking en ekki drama og náði ekki alveg að vinna sér inn nein stig þar,“ sagði Anna María og glotti.
Lið Selfoss er í 6. sæti með 7 stig eftir 7 umferðir og fyrirliðinn vill gera betur.
„Við teljum okkur geta verið í topp 5 og ætlum að enda þar,“ sagði Anna María að lokum en hægt er að horfa á allt viðtalið við hana í spilaranum hér að ofan.
Athugasemdir